17. febrúar 2011

Ég

Ég átti leið um Eiðistorg í fyrra. Þá voru þar þrír strákar með tombólu. Á leiðinni út varð ég vitni að þessu: Gömul hjón komu paufandi arm í arm og stöldruðu brosandi við hjá strákunum. "Jæja strákar, svo þið eruð með tombólu" sagði karlinn ansi glaðbeittur. "Eru þið að styrkja eitthvert málefni?" Strákurinn í miðjunni horfði upp á kallinn og svarði "Já". ....."Og hvaða málefni?" Nú litu hinir peyjarnir niður á tærnar á sér. "Mig" svaraði strákurinn.


Ólafur Ragnar Grímson forseti var í Silfri Egils á sunnudaginn var. Það er glæsilegur maður, Ólafur. Ég þekki útlenskan mann sem hitti Ólaf Ragnar í heldur hversdagslegri móttöku á Bessastöðum og heillaðist meira af forsetanum en nokkru öðru á þessu landi náttúruundranna. Ótrúlegt að örþjóð eigi slíkan mann, sagði þessi skynugi og víðföli vinur minn hvað eftir annað. Þó gat hann ekki hafa séð þann Ólaf, sem mest af öllum ber, stríðsmannin sem lætur engan eiga neitt inni hjá sér og lifir allt af. Kemur eins og köttur niður á fæturna, þegar vaxið er lekið af vængjunum í hita sólarinnar. Og eins og góður bardagamaður kemur Ólafur sífellt á óvart og finnur vígstöðu sem enginn annar sá. Nú situr hann á krossgötum í stjórnkerfi landsins, sem áður voru ekki til og ákveður einn síns liðs örlög laga sem Alþingi setur. Enginn veit hvað hann gerir næst.


Samt skyggir hjúpur dapurleikans á þessa glæsilegu persónu. Segir nokkur maður oftar "ég" en Ólafur Ragnar forseti og hví þarf hann sífellt að halda á lofti eigin orðspori? Minna á gervileik sinn, menntun og mannkosti. Og hvers vegna kemur alltaf upp hjá honum þessi saga um hann hafi farið um allan heim eða allt land "að undanförnu" og talað við fjölda manna, í höll og hreysi? Hvaða leynivinir Ólafs eru þetta? "Minn herra á aungvan vin" segir Facebookvinur minn og hittir naglan á höfuðið. Hvar sem afburðamaðurinn Ólafur Ragnar kemur og hvað sem hann gerir þá fer hann vinalus á næsta stað. Fyrir hvaða málstað hefur þessi mikli stríðsmaður barist, að eiga ekki eina einustu taug í öllum þeim fjölda sem kynnst hafa honum, í skóla, í stjórnmálum, í stafi? Maður hefur talað við ófáa þeirra. Málstaðurinn er "Ég".


Norðmenn áttu annan Ólaf, Ólaf konung, föður Haraldar sem nú situr. Þennan kóng elskuðu þeir heitar en aðra menn og áttu af honum mynd í hjarta sínu. Þessi mynd er reyndar til sem raunveruleg ljósmynd. Kong Olav på trikken. Hann situr í sporvagninum við hlið óþekktarar konu klæddur fábrotnum skíðagalla með stafina hjá sér og sýnir verðinum miðann sinn. Það eru ólíkir þjóðhöfðingjar þeir nafnar og það eru ólíkar þjóðir sem hvor hampar sínum Ólafi.


Ég tilheyri þjóð Ólafs Ragnars. Nú hafa tugir þúsunda þjóðarinnar ákallað Ólaf í þeirri bæn að hann stöðvi gildistöku nýrra Iscevelaga. Við eigum ekki að borga fyrir misheppnað peningabrall einkafyrirtækis er sagt. Samt hefur enginn þessarra mótmælenda fundið neitt því til foráttu að almenningur borgi upp í topp íslenskum viðskiptavinum Landsbakans, sem sumir voru blekktir og sumir blindaðir af græðgi. Nei, málið er að við eigum ekki að borga fyrir svik okkar manna gagnvart útlendingum, þó við bætum að sjálfsögðu svik sömu manna gagnvart okkar fólki upp í topp. Málstaðurinn er "Ég".


Iscesvae var svikamilla. Tombóla bíræfinna stráka sem ekki hiku að taka við peningum venjulegs fólk og góðgerðafyrirtækja til eigin brúks og vissu að þeir gætu ekki staðið við sín orð. Þeir söfnuðu peningum frá gömlu fólki fyrir málstaðinn "Ég". Um það er aldrei rætt á Íslandi hvaða afleiðingar svona framferði eigi að hafa. Nú safna Íslendingar undirskriftum fyrir sama málstað, "Ég", "Við Íslendingar". Ólíklegustu menn koma í bljúgri bæn til Bessastaða knúðir af hinum mikla málstað. Þessu til undirbúnings kom Ólafur Ragnar fram í sjónvarpinu. Vinalaus spinnur forsetinn að vana vef eigin mannkosta og málar með orðum myndir af mikilfenglegri þjóð, sem stundar viðskipti eins og þeir bestu í heiminum og býr að sterkari lýðræðishefð en nokkir aðrir. Mér líður illa að horfa á þetta.


Þetta er ekki það Ísland sem ég vil búa í. Þetta er ekki sú landsýn sem ég vil hafa á hverjum morgni þegar sólarljósið lyftir fjallakollunum upp úr rökkrinu og maður vaknar senn til starfa sinna. Þjóð sem gerir það að lífskalli sínu að afneita kröfum án þess að íhuga málið frá annari hlið en eign buddu og fyllist í raun stolti yfir bíræfnum strákum sem svíkja fé af saklausum vegfarendum hefur sjálf dæmt sig til útlegðar í eigin landi, eigin glæpanýlendu.

Ekkert efnahagshrun gerir landið jafn óbyggilegt og siðferði Ég-málstaðarins getur gert.

21 comments:

Unknown sagði...

Kærar þakkir fyrir þessi skrif.

Oddur Ólafsson sagði...

Frábær pistill takk fyrir.

Unknown sagði...

Tek undir hvert orð

Unknown sagði...

Góður - takk fyrir mig

Unknown sagði...

góður pistill. nakinn sannleikur

Unknown sagði...

Vá flottur pistill. Tek undir hvert orð.

Unknown sagði...

Þakka fyrir frábæra hugleiðingu. Vonandi nær þessi boðskapur alla leið til Bessastaða ..... og þó.

Jón Eiríksson sagði...

Það er nú bara "amen" á eftir efninu

Unknown sagði...

Illa vegið að landi og þjóð! Tala nú ekki um forseta vorum. Þú lagar ekki siðferði með því að nota siðleysu. Ég vildi óska að alþingismenn myndu persónugera sjálfa sig líkt og herra Ólafur. Maðurinn er sá eini sem tekur ábyrgð í stjórnmálum á Íslandi! Við getum ekki borið ábyrgð á gölluðu fjármálakerfi heillar heimsálfu! Þú elskar ekki land þitt lengur Hans Jakob. Þú ert að dæma stóran part þjóðarinnar sjálhverfan vegna þess að fólk vill ekki ábyrgjast glæpi einstaklinga. Mörg ógæfuspor hafa verið tekin eftir hrun, Ólafi tókst þó að bjarga ótrúlegum fjármunum með neitun fyrri samnings. Þú hefðir eflaust skrifað uppá það. Komandi kynslóðir þurfa að greiða þessa peninga, þú hefur það eflaust mjög fínt sem læknir og skynjar því ekki áhryfin. Sjálfhverfa ? Auðvitað átti ekki að ábyrjgast innistæður á Íslandi uppí topp. Ég! ætla samt ekki að láta blóðmjólka mig meira mótspyrnulaust. Þú skynjar eymdina og úrræðaleysið, þess vegna blöskrar þér siðferðið á Íslandi. Siðleysið kemur innan úr alþingi, ekki frá forsetanum.

kv.
Haukur Ármannsson

Unknown sagði...

Góður pistill og takk fyrir.
Ég er að vinna að hjálparstörfum í Kenía og hef staðið fyrir ýmsum fjáröflunum á Íslandi. Eftir hrun fór ég æ tíðar að fá þau svör hvort ekki væri nær að hjálpa Íslendingum. Þá spurði ég gjarnan viðkomandi hvort hann væri að gera eitthvað í því sjálfur, en svarið var oftast nei og margir urðu mjög pirraðir og móðgaðir yfir spurningu minni. Það er ekki nóg með að þeir vilji ekkert gera fyrir aðra heldur vilja þeir líka að ég hætti að hjálpa öðrum og fari að hjálpa þeim. Ég um mig frá mér til mín. Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Ég er sammála því að þetta er ekki það Ísland sem ég vil búa í.

Toucé Monseigneur sagði...

Er alveg innilega sammála Hauki Ármannssyni hér á kommentakerfinu. Læt ekki slá ryki í augun á mér svona auðveldlega Dr.

Kveðja,

Jón Gunnar

Haraldur sagði...

Haukur hefur mikið til síns máls eins og Hanns Jakob hefur líka.
Það eru venjulega að lágmarki tvær hliðar á hverju máli oftast fleiri.
Í þessu máli eru þær ótalmargar.
Allt eftir því á hvaða sjónarhól menn kjósa sér viljandi.
En að mínu áliti er nauðsinleg öryggisvörn fyrir þjóðina að forsetinn geti hafnað lögum sem þjóðin er ekki sátt við, hvaða álit sem menn hafa á hverjum forseta fyrir sig er svo annað mál.
Næsta mál er fyrir okkur að fá botn í er hvort þessi setning, að við eigum að bera ábyrgð á lögum heillar heimsálfu um ábyrgðir á bönkum og gerðum þeirra eigi við rök að styðjast.

Unknown sagði...

Glæsileg skrif, kæri vin

Ragnar Þór Pétursson sagði...

„Segir nokkur maður oftar „Ég“ en ÓRG“ spyr Hans Jakob í háðungarskyni. Svar: Já. Þú, Hans Jakob. Bara í þessari grein nefnir þú sjálfan þig 7 sinnum eða á rétt rúmlega 100 orða fresti, í nýársávarpi sínu nefnir ÓRG sig 4 sinnum eða á rúmlega 420 orða fresti. Þú ert sum sé fjórum sinnum uppteknari af „þér“ en hann.

Vigfús Magnússon sagði...

Góður pistill, Hans Jakob.

"Þú elskar ekki land þitt lengur Hans Jakob. Þú ert að dæma stóran part þjóðarinnar sjálhverfan vegna þess að fólk vill ekki ábyrgjast glæpi einstaklinga."
Segir Haukur og fær undirtektir einstaka manns.
Ég aftur á móti tel, að við sem þjóð verðum að axla ábyrgð á því að svokölluðum útrásarvíkingum var gefinn laus taumur. Ég get með engu móti tekið undir þann söng, að "við eigum ekki að borga skuldir einkafyrirtækis". Við berum að mínu viti hvert og eitt vissa ábyrgð á hvernig fór. Sum kusu þá, sem lögðu niður reglurnar og allmörg (kannski fleiri) okkar horfðum með aðdáun á afrek þeirra sem misnotuðu aðstöðu sína freklega, blinduð af dýrðarljómanum, sem hinn ástsæli forseti vor mærði ákaft.
Lögspekingar segja: Ignorantia semper nocet. Sem þýðir að ekki dugir að bera því við að maður hafi ekki vitað.

Þórður Víkingur sagði...

Mjög góð hugvekja Hansi.

Það er þarft verk að benda á tækifærismennskuna og tvískinnungin sem veður hér uppi nú sem fyrr.

Þjóðin hugsar á sama sjálfhverfa mátann eins og ÓRG. Þjóðin er ÓRG og ÓRG er þjóðin. Um margt glæsileg þjóð, dugleg og áræðin. Hin hliðin er sjálfhverfa, yfirborðsmennska og afneitun.

Ummælin sem hittu hvað fastast í mark þegar landið gekk inn í EES var þegar Jón Baldvin sagði "allt fyrir ekkert". Þá var loks lag!

Unknown sagði...

Frábær grein. Ég held einmitt að menn sem skrifa svona greinar elski bæði land sitt og þjóð; vinur er sá er til vamms segir. Blinda á eigin lesti er versta blindan.

Unknown sagði...

Þakka þér fyrir þetta - hvernig sem allt fer hefur þú sagt það sem ég hugsa og orðað það svona líka ágætlega!

Unknown sagði...

Heyr heyr, þig á Bessastaði.

Unknown sagði...

Eins og talað útúr mínu hjarta.
Kærar þakkir.

nemo sagði...

Þakkir fyrir þetta!