Það er meiri húmor í harmsögu Íslands en margan grunar. Eitt helsta frásagnarbragð hins óþekkta höfundar er að snúa öllu á hvolf, gera vinstrimenn að markaðshyggjumönnum og markaðshyggjumenn að skömmtunarsinnuðum búrum. Og í sumar sátu þingmenn Íslands á endalausum fundum við að smíða milliríkjasamning. Upp á sitt eindæmi nýjan samning við Breta og Hollendinga. En nú þegar þegar samninganefndir landanna eru loks farnar að funda, þá ræður í raun öllu um málið hvort íslenskir stjórnmálamenn ná að semja sín á milli. Svo vísast eru þeir þá ekki að gera það.
Sagan er orðin æsispennandi og nálagast hvörf, fresturinn er örstuttur. Fram hefur komið að hin ótrúlega þjóðaratkvæðagreisla veldur meiri titringi í Evrópu en flesta óraði fyrir. Financial Times segir í leiðara að hún kunni að setja bankakerfið í uppnám þar eð ríkisábyrgðir verði ekki lengur jafn sjálfgefnar og þá hlýtur breska ríkistjórnin að eiga skilið sinn skerf af skömminni fyrir að málum sé nú svo komið. Sennilega eru þetta þau óvæntu tíðindi utan úr geimnum sem fjallað var um í síðasta pistli. Taktík okkar virðist vera að bíða róleg eftir að viðsemjendur teygi sig lengra og lengra til að forðast atkvæðagreiðsluna á Íslandi. En auðvitað er þetta Hvor er pútan? eða chicken race, eins og annar hefur bent á. Náist ekki samningar og atkvæðagreiðsla verður haldin eru afleiðingarnar varla skárri fyrir okkur en hina keppendurna í þeim leik.
Þess vegna er það spurningin nú hvort íslenskir stjórnmálamenn séu í raun að semja sín á milli. Er meirihluti fyrir því að semja um Icesave og halda áfram samkvæmt þeirri hagfræðiáætlun sem í orði er fylgt eða er í raun ekki vilji til þess? Hvað þarf að gerast í íslenskri pólitík til að samningasinnar nái saman? Ríkisstjórnin hefur formlega játað vanmátt sinn í þessu máli og lifi hún áfram bíða hennar bara fleiri mál að játa vanmátt sinn gagnvart, enda í raun lifandi dauð minnihlutastjórn. Þess vegna snýst Iscesavemálið ekki um Icesave nema að litlu leyti. Það snýst um fjárlög næstu ára, hugmyndafræði stjórnvalda, samskipti við aðrar þjóðir og ónýtan gjaldmiðil. ESB eða ekki ESB. Þetta eru hinar raunverulegu milljón punda spurningar sem svara verður fyrir næstu helgi.
Fylgist vel með næsta þætti í hinni óborganlegu Hruneyjansögu.
28. febrúar 2010
26. febrúar 2010
Þáttaskil í Icesave á morgun, eða hinn
Jóhanna Sigurðardóttir telur enn að samningar geti náðst við Hollendinga og Breta um Icesave fyrir 6. mars, eins og fram hefur komið í fréttum í dag, þrátt fyrir að íslenska samninganefndin hafi komið heim í fússi eftir að hafa verið sýndur svokallaður fökkfingur. Fjármálaráðherra hefur upplýst að viðsemjendur okkar hafi ekki viljað hlusta á tilboð Íslands þó um væri að ræða mjög vandaðan eigin flutning Herberts Guðmundssonar á lagi sínu "Can't walk away" í nýjum búningi, sem ber tiltilinn "Can't pay anyway". Ýmsum hefur komið bjartsýni íslenskra stjórnvalda á óvart, en þau eru sögð vongóð um að málið leysist farsællega um eða eftir helgi. Samkvæmt heimildum tíðindamanns hafa fulltrúar frá bæði Guðspekifélaginu og Ásatrúarsöfnuðinum verið í sambandi við stjórnvöld síðustu daga og er bjartsýnn tónn Íslendinga ekki síst rakin til upplýsinga sem þar hafa komið fram. Sagt er að von sé á harla óvæntum tíðindum í Icesavemálinu.
Samkvæmt ónafngreindum heimildarmanni hefur fjörleg umræða um Iscesave á samsiptavef lífhnatta, svokallaðri Spacebook, leitt til þess að áður óformgerðir orkusveipir hafa líkamnast og mun von á sendinefnd líkamninga úr geimnum til jarðar nú um helgina. Fyrir henni fara í sameiningu þeir Egill Skallagrímsson og Eiríkur blóðöxi. Áætlað er að þeir komi fram í Silfri Egils á sunnudag og miðli af reynslu sinni af úrlausn flókinna deilumála. Viðtalið verður svo endursýnt með íslenskum texta í dagsrárlok. Þá munu þeir félagar koma fram á málstofu í Háskólanum í Reykjavík og skýra nánar frá samningatækni sem þeir hafa þróað og byggir á jákvæðri hugsun, orkuhliðrun og þindaröndun. Er yfirskrift erindisins "Öfundsverðar langtímahorfur[broskall]". Talið er að eftir þetta muni Icesavemáið steinliggja.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)